Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. nóvember 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Jónsgeisla í Reykjavík

Brot 42 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í norðurátt, að Reynisvatnsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 136 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar í Jónsgeisla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.