Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. mars 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Jónsgeisla í Reykjavík

Brot 58 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 136 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna (safnbraut) er 50 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83.

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.