Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. júní 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Jaðarseli í Reykjavík

Brot 4 ökumanna voru mynduð í Jaðarseli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jaðarsel í norðurátt, við Jórusel. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 135 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar í Jaðarseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.