11. mars 2011
11. mars 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Hvalfjarðargöngum
Brot 3 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum í dag en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 124 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða rúmlega 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.