Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. febrúar 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Hvalfjarðargöngum

Brot 190 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á einni viku eða frá 29. janúar til 5. febrúar. Vöktuð voru 14.399 ökutæki og því ók mjög lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Tíu óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96.