Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. janúar 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Hvalfjarðargöngum

Brot 89 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá fimmtudegi til mánudags eða á tæplega 96 klukkustundum. Vöktuð voru 8.590 ökutæki og því ók mjög lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Átta óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 101.