Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. september 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Hlíðarbergi í Hafnarfirði

Brot 29 ökumanna voru mynduð í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í vesturátt, við Setbergsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 110 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Hlíðarbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.