Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. júní 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Heiðargerði í Reykjavík

Brot 12 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Heiðargerði í vesturátt, á móts við Heiðargerði 27. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Heiðargerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.