24. júní 2014
24. júní 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Heiðargerði í Reykjavík
Brot 14 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Heiðargerði í vesturátt, við innkeyrslu að húsum nr. 27-33. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 37 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.
Vöktun lögreglunnar í Heiðargerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.