Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. maí 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Heiðargerði í Reykjavík

Brot 17 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Heiðargerði í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 41 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 23-50% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 44-46 km/klst.