Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. júlí 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Hamrahlíð í Reykjavík

Brot 53 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, að Bogahlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 153 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.