Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. september 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Hamrahlíð í Reykjavík

Brot 8 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, á móts við Hlíðaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 213 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 44.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.