Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. mars 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Hamrahlíð í Reykjavík

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, á móts við MH. Á 30 mínútum, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.