Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. júní 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Hamrahlíð í Reykjavík

Brot 28 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í austurátt, við MH. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 77 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.