Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. mars 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Háholti í Hafnarfirði

Brot 3 ökumanna voru mynduð í Háholti í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í austurátt, við Brattholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 11 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Hinir brotlegu mældust allir á 39 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Háholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.