22. september 2010
22. september 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Háholti í Hafnarfirði
Brot 4 ökumanna voru mynduð í Háholti í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í vesturátt, að Álfholti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 48 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.
Vöktun lögreglunnar í Háholti, en í nágrenninu er Hvaleyrarskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.