Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. september 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Gvendargeisla í Reykjavík

Brot 15 ökumanna voru mynduð í Gvendargeisla í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gvendargeisla í vesturátt, á móts við Gvendargeisla 80. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Gvendargeisla er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.