Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. október 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Gullengi í Reykjavík

Brot 27 ökumanna voru mynduð í Gullengi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullengi í vesturátt, á móts við Gullengi 4. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Gullengi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.