12. maí 2015
12. maí 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Grænatúni í Kópavogi
Brot 29 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, að Bæjartúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.
Vöktun lögreglunnar í Grænatúni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.