Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. maí 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Grænatúni í Kópavogi

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, við Bæjartún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 62 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 69.

Vöktun lögreglunnar í Grænatúni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.