Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. apríl 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Furugrund í Kópavogi

Brot 6 ökumanna voru mynduð í Furugrund í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Furugrund í austurátt, að Víðigrund. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 23 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Furugrund er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.