Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. apríl 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Furugrund í Kópavogi

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Furugrund í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Furugrund í austurátt, að Víðigrund. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Furugrund er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.