Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. september 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Eskihlíð í Reykjavík

Brot 84 ökumanna voru mynduð í Eskihlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eskihlíð í austurátt, á móts við Eskihlíð 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 243 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Eskihlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.