Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. maí 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Eskihlíð í Reykjavík

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Eskihlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eskihlíð í austurátt, við Blönduhlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Eskihlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.