12. september 2023
12. september 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Dalsmára í Kópavogi
Brot 29 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, við Lindarsmára. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.
Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.