17. september 2008
17. september 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Dalsmára í Kópavogi
Brot 35 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, að Lindasmára. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59. Á þessum stað í Dalsmára eru bæði merktar gangbrautir og hraðahindranir.
Vöktun lögreglunnar í Dalsmára, en í nágrenni hans er Smáraskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.