25. september 2013
25. september 2013
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Dalsmára í Kópavogi
Brot 11 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í norðurátt, við Smáraskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.
Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.