Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. september 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Breiðumýri á Álftanesi

Brot 36 ökumanna voru mynduð í Breiðumýri á Álftanesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðumýri í norðurátt, að Álftanesskóla. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 48 ökutæki þessa akstursleið og því ók mikill meirihluti ökumanna, eða 75%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tíu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar í Breiðumýri er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.