Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. september 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Austurbergi í Reykjavík

Brot 67 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í norðurátt, á móts við Austurberg 16-20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 115 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en helmingur ökumanna, eða 58%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.