Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. júlí 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Austurbergi í Reykjavík

Brot 55 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í norðurátt, á móts við Austurberg 16-20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 123 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning, blautt og skýjað var á meðan hraðamælingunni stóð.