18. apríl 2012
18. apríl 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur í Arnarsmára í Kópavogi
Brot 3 ökumanna voru mynduð í Arnarsmára í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarsmára í vesturátt, að Bollasmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 11 ökutæki þessa akstursleið og því var brotahlutfallið 27%. Hinir brotlegu óku allir á 50 km hraða eða meira en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.
Vöktun lögreglunnar í Arnarsmára er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.