Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. mars 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur í Arnarbakka í Reykjavík

Brot 43 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, við Dvergabakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 116 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Arnarbakka er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.