Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. júní 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vínlandsleið í Reykjavík

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Vínlandsleið í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vínlandsleið í norðurátt, á móts við Vínlandsleið 2-4. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 144 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Vínlandsleið er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.