Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. ágúst 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Víkurvegi í Reykjavík

Brot 57 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Víkurveg í norðurátt, að Hallsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 196 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 85.

Vöktun lögreglunnar á Víkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.