Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. október 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vífilsstaðavegi í Garðabæ

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í norðurátt, við Löngulínu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 125 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar á Vífilsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.