Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. október 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vífilsstaðavegi í Garðabæ

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í austurátt, við Garðatorg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 230 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar á Vífilsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.