Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. október 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vífilsstaðavegi í Garðabæ

Brot 72 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í vesturátt, á móts við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 135 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 50 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrjátíu og einn ók á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 72. Fimm ökumenn eiga sviptingu ökuréttinda yfir höfði sér eftir þessa hraðamælingu.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.