Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. desember 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Reykjavík

Brot 133 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt, að Höfðabakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.319 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sautján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.