Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. júní 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Reykjavík

Brot 172 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt, að Höfðabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.224 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 135.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.