Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. október 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Reykjavík

Brot 130 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Vínlandsleið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.064 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og átta óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 131.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.