10. janúar 2022
10. janúar 2022
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Reykjavík
Brot 25 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Bauhaus. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 711 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 118.
Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur og hálkuþekja var á meðan hraðamælingunni stóð.