Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. nóvember 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Reykjavík

Brot 81 ökumanns var myndað á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Bauhaus. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 742 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tólf óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.