Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. mars 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Ásland. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 356 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.