Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. janúar 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ

Brot 100 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, að Hamrahlíð (skógrækt). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 980 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.