Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. nóvember 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ

Brot 87 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ sl. föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, við Aðaltún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 658 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.