Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. desember 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Klébergsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 82 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.