Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. júní 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Vallá. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 436 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 82 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.