Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. júlí 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturlandsvegi

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, við Esjuberg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 321 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 107 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 124.