Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. ágúst 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturgötu í Hafnarfirði

Brot 41 ökumanns var myndað á Vesturgötu í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í austurátt, við Norðurbakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 125 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar í nágrenni grunnskóla (gönguleiðir) á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.