Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. nóvember 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vesturgötu í Hafnarfirði

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í suðurátt, á móts við Norðurbakka 19-25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 119 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.